Hlutastarfaleiðin: Atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls

(2005230)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
15.02.2021 34. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Hlutastarfaleiðin: Atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls
Nefndin fjallaði um málið.

Formaður lagði til að málinu yrði lokið með eftirfarandi bókun:

Nefndin lýsir ánægju sinni með frumkvæði Ríkisendurskoðunar að hefja samtímaeftirlit með tilteknum efnahagsaðgerðum stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Slíkt samtímaeftirlit styrkir eftirlit Alþingis með því að nýting ríkisfjár sé skilvirk, að staðinn sé vörður um hagsmuni ríkissjóðs og útgreiðslur úr honum séu í samræmi við forsendur og ákvarðanir Alþingis.

Líneika Anna Sævarsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Andrés Ingi Jónsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Óli Björn Kárason, Þorsteinn Sæmundsson og Þórarinn Ingi Pétursson tóku undir bókunina.

Samhliða var fjallað um 4. dagskrárlið.
07.12.2020 20. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Hlutastarfaleiðin: Atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls
Nefndin ræddi málið. Nefndarritari upplýsti um að tvær skýrslur Ríkisendurskoðunar um samtímaeftirlit væru væntanlegar.
10.11.2020 9. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Hlutastarfaleiðin: Atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls
Nefndin ræddi málið.
09.11.2020 8. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Hlutastarfaleiðin: Atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls
Nefndin ræddi málið og málsmeðferð.
05.10.2020 1. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Hlutastarfaleiðin: Atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls
Nefndin ræddi um mögulega málsmeðferð.
29.05.2020 81. fundur fjárlaganefndar Hlutastarfaleiðin: Atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls
Til fundarins komu Skúli Eggert Þórðarson, Guðrún Jenný Jónsdóttir, Hrafnhildur Ragnarsdóttir og Haraldur Guðmundsson frá Ríkisendurskoðun. Skýrsla stofnunarinnar Hlutastarfaleið-úttekt Ríkisendurskoðunar var kynnt og svöruðu gestirnir síðan spurningum nefndamanna um efni hennar.
29.05.2020 65. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Hlutastarfaleiðin: Atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls
Á fund nefndarinnar komu Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi, Guðrún Jenný Jónsdóttir, Hrafnhildur Ragnarsdóttir og Halldór Guðmundsson. Gestir gerðu grein fyrir skýrslunni og svöruðu spurningum nefndarmanna.